Um mig / About

Ég heiti Hildur Björk Þorsteinsdóttir og bý á Austurlandi. Ég er listræn og fjölhæf manneskja og elska að skapa og búa til hluti, hvort sem það er að teikna, mála vatnslitamyndir og olíumálverk eða hanna keramikmuni.
Í verkunum mínum birtast fígúrur og mynstur sem þróast með tímanum. Ég sæki innblástur í íslenskar þjóðsögur og í náttúru og andrúmsloft Austfjarða.
Ég lærði grafíska hönnun og myndskreytingu og útskrifaðist með B.A.-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2010. Ég er einnig með M.T.-gráðu í list- og verkgreinakennslu.
Ég hef unnið við grafíska hönnun í mörg ár, hannað lógó fyrir fyrirtæki og einstaklinga, gert veggspjöld og myndskreytt nokkrar barnabækur. Ég hef einnig haldið sýningar. Í dag kenni ég list- og verkgreinar í grunnskóla en tek samhliða að mér alls konar verkefni í grafískri hönnun og keramik.
Ég er líka mikil hestakona og hef ástríðu fyrir ljósmyndun, sérstaklega að taka fallegar hestamyndir.
Ég er kröfuhörð á sjálfa mig og með smá fullkomnunaráráttu, og legg því mikla alúð í hvert smáatriði. Hvert verk er einstakt og unnið í höndunum á vinnustofunni minni.
· · ·
My name is Hildur Björk Þorsteinsdóttir and I live in East Iceland. I am an artistic and versatile person who loves creating and making things, whether drawing, painting in watercolour and oil, or designing ceramics.
My work features figures and patterns that develop over time. I am inspired by Icelandic folklore and by the nature and atmosphere of the Eastfjords.
I studied graphic design and illustration and graduated with a B.A. from the Iceland University of the Arts in 2010. I also hold an M.T. degree in art and craft teaching.
For many years I have worked in graphic design, creating logos for companies and individuals, designing posters and illustrating several children's books. I have also exhibited my work. Today I teach art and craft at a primary school, while also taking on all kinds of projects in graphic design and ceramics.
I am also a passionate horsewoman and love photography, especially taking beautiful pictures of horses.
I am demanding of myself and a bit of a perfectionist, so I put great care into every detail. Every piece is one of a kind and handmade in my studio.